lydheilsufelag-laeknanema.org

Lýðheilsufélag læknanema stendur árlega fyrir blóðgjafamánuði HÍ í mars. Markmið þessa átaks er að fá nýja blóðgjafa í Blóðbankann. Bankanum hefur alltaf gengið vel að fullnægja eftirspurn eftir blóðhlutum, þökk sé blóðgjöfunum. En þörfin er að aukast. Með aukinni tækni og þekkingu aukast meðferðarúrræði, auk þess sem þróunin á Vesturlöndum er sú að öldruðum fjölgar. Því fjölgar þeim sem þurfa blóð og á sama tíma fækkar þeim hlutfallslega sem geta gefið blóð. Því er nauðsynlegt að blóðgjöfum fjölgi, sérstaklega meðal ungs fólks. Í mars á hverju ári eru allir háskólanemar hvattir til að mæta í Blóðbankann eða  Blóðbankabílinn og blæða fyrir sitt nemendafélag. Það nemendafélag sem hefur hlutfallslega flesta blóðgjafa vinnur svokallaðan blóðgjafabikar sem afhentur er á lokahófi blóðgjafamánaðarins í byrjun apríl. 
 

Blóðbankinn

blodlogo