lydheilsufelag-laeknanema.org

Lýðheilsufélag læknanema hefur á undanförnum árum boðið leikskólabörnum á aldrinum 3-6 ára að koma í heimsókn á spítalann með veika eða slasaða bangsa. Tilgangur verkefnisins er tvíþættur: Annars vegar til að fyrirbyggja hræðslu hjá börnum við lækna, heilbrigðisstarfsfólk og spítalaumhverfið og hins vegar að gefa læknanemum á yngri árum tækifæri til að æfa samskipti við börn. Stefnt er að því að halda tvo bangsaspítala á hverju skólaári. Heimsóknin fer þannig fram að hvert barn kemur með sinn  eigin bangsa. Gott er að ræða fyrirfram við barnið um það hvernig bangsinn er veikur (hvort hann sé t.d. með hálsbólgu, magapest eða brotinn fót). Þegar á spítalann er komið fær barnið að innrita bangsann og að því loknu kemur bangsalæknir og vísar barninu inn á læknastofu þar sem læknirinn skoðar bangsann og veitir honum þá aðhlynningu sem hann þarf á að halda, hvort sem það er tekin röntgenmynd, bangsinn plástraður eða það eru settar á hann umbúðir (bangsalæknir getur þó ekki saumað rifinn bangsa!). Við hvetjum áhugasama til að hafa samband ef þörf er á frekari upplýsingum.