Föstudagur, 14. janúar 2011 11:24
Lýðheilsufélag læknanema hefur sett sér það markmið að stuðla að bættri lýðheilsu og heilsuvitund Íslendinga með áherslu á háskólasamfélagið. Dæmi um aðaláherslumálefni eru velmegunarsjúkdómar, reykingar og geðheilbrigði. Stærstu verkefnin eru blóðgjafarmánuður og bangsaspítali en einnig er stefnt að því að halda viðburði um heilsutengd málefni innan háskólans, s.s. fræðslufundi og fyrirlestra svo og útgáfu bæklinga. Bangsaspítalinn hefur í gegnum tíðina verið afar vinsæll hjá bæði leikskólabörnum og læknanemum, en þarna fá læknanemar á fyrstu árunum að hitta sína fyrstu „sjúklinga“ og er þessi uppákoma jafnan vel sótt af þeim. Lýðheilsufélagið leitast við að vera í samstarfi við önnur nemendafélög innan heilbrigðisvísindasviðs eða háskólans. Allir viðburðir á vegum félagsins eru vímuefnalausir. Öllum læknanemum stendur til boða að taka þátt í starfsemi lýðheilsufélagsins.?