lydheilsufelag-laeknanema.org

Vel heppnaður bangsaspítali að baki

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

IMG_3557Á Bangsaspítalanum, sl. laugardag, voru 300 bangsar læknaðir. Strax klukkan 10 voru margir bangsar komnir og greinilegt að mikið hefur verið af veikum böngsum undanfarið. Algengustu kvillar bangsanna voru eyrnabólga, kvef, beinbrot og  magapína. Bráðatilvik kom upp þegar Lúlli löggubangsi kom í fylgd tveggja lögreglumanna. Þá hafði Lúlli lent í árekstri en hann hafði ekki verið með bílbelti og því mikið slasaður.  Börnin ráku upp stór augu en fengu að fylgja Lúlla löggubangsa inn á skoðunarstofu. Lúlli var í öruggum höndum bangsalæknis og var læknaður á staðnum. Meðan börnin biðu eftir að fara með bangsana sína í skoðun hjá lækni þá var boðið upp á fræðslu, andlitsmálingu og leik.

Lýðheilsufélag læknanema þakkar fyrir frábæra þátttöku foreldra, barna og bangsa á laugardaginn.

Hér má sjá frétt á visir.is af Lúlla löggubangsa.